|
Skrifað af: Administrator
|
|
Laugardagur, 11. febrúar 2012 13:37 |
|
Garnbúðin Gauja hefur flutt sig milli húsa í Mjóddinni og er nú staðsett í Þönglabakka 4, sama húsi og strætó og pósturinn. Við bjóðum nýja og gamla viðskiptavini okkar velkomna til okkar í nýja og glæsilega verslun. |
|
Síðast uppfært: Laugardagur, 11. febrúar 2012 13:40 |
|
|
Garnbúðin Gauja opnaði verslun í Mjóddinni í byrjun árs 2010. |
|
Markmið verslunarinnar er að þjónusta prjónakonur og menn út um allt land með fjölbreytilegu úrvali í garni og skyldum vörum, má þar nefna hinn sívinsæla íslenska lopa frá Ístex , garn frá Sandnes í Noregi, ullargarn frá Navía i Færeyjum og garn frá Dönsku fyrirtækjunum Kauni og Rassmilla.
Einnig bíður verslunin upp á mikið úrval af prjónum, tölum og annari smávöru sem tengist prjónaskap. Prjónakaffi er fyrsta mánudag í hverjum mánuði og prjónanámskeið hefjast í haust.
|
|
Þröngt máttu sáttir sitja á fyrsta prjónakaffi haustins í Garnbúðinni Gauju !! Á fimmta tug kvenna mættu galvaskar og prjónuðu saman. Takk kærlega fyrir komuna allar. Hlökkum til að sjá ykkur aftur á næsta prjónakaffi sem verður mánudaginn 4.október
|
|
|
Rasmilla garnið frá Danmörku, sem við byrjuðum að flytja inn í vor, hefur slegið rækilega í gegn.
Það eru tvær tegundir undir Rasmilla merkinu , annars vegar "Yndlingsgarn" sem er 55% ull / 45% bómull og ber nafn með rentu ...sannarlega yndislegt garn sem kemur í yfir 40 litbrigðum, og svo er það "Luksusgarn" sem er 70% ull / 30% silki ...gríðarlega skemmtilegt að prjóna úr því t.d. ýmiskonar mynsturprjón. Luksusgarnið kemur í yfir 20 litbrigðum. Einnig erum við með nokkuð af stökum uppskriftum í sölu frá Rasmilla.
|
|
Nánar...
|
|
|